Fjögur sóttu um embætti hæstaréttardómara

Fjórar umsóknir bárust um embætti hæstaréttardómara, sem veitt verður frá og með 1. september. Þá lætur Hrafn Bragason af embætti fyrir aldurs sakir.

Umsækendurnir eru: Páll Sveinn Hreinsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands, Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA dómstólinn í Lúxemborg og Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert