Svo virðist sem skotið hafi verið úr loftbyssu eða loftriffli á bíl, sem stóð við Heiðarholt í Reykjanesbæ klukka 19:20 í gærkvöldi. Fram kemur á fréttavef Víkurfrétta, að stúlka var að taka barn úr barnabílstól þegar ein rúðan í bílnum mölvaðist. Við skoðun fannst lítið gat efst á rúðunni.
Haft er eftir lögreglu, að málið sé litið mjög alvarlegum augum því stúlkan eða barnið hefðu hæglega getað stórslasast ef skotið hefði hæft þau. Lýsir lögreglan eftir vitnum að þessu atviki.