Stefnir í hálfa milljón erlendra ferðamanna til Íslands í ár

Er­lend­um ferðamönn­um fjölgaði um rúm 19% fyrstu 6 mánuði árs­ins, miðað við sama tíma í fyrra, sam­kvæmt taln­ing­um Ferðamála­stofu í Leifs­stöð. Mik­il aukn­ing var í júní síðastliðnum en þá fjölgaði ferðamönn­um um fjórðung á milli ára. Í júní er aukn­ing frá öll­um markaðsvæðum.

Frá ára­mót­um til júníloka voru er­lend­ir ferðamenn sem fóru um Leifs­stöð 177.831 tals­ins, sam­borið við 149.132 í fyrra. Lít­il­hátt­ar fækk­un er frá Banda­ríkj­un­um en fjölg­un frá öll­um öðrum mörkuðum. Á fyrstu sex mánuðunum eru Bret­ar fjöl­menn­ast­ir en Banda­ríkja­menn og Dan­ir í öðru og þriðja sæti eins og í fyrra.

Ársæll Harðar­son, for­stöðumaður markaðssviðs Ferðamála­stofu, seg­ir á heimasíðu stofn­un­ar­inn­ar, að vöxt­ur­inn komi ekki á óvart en því hafi verið spáð að í lok árs hafi hingað komið yfir 500.000 er­lend­ir ferðamenn í fyrsta sinn. Jafnt og þétt hef­ur orðið mik­il aukn­ing á sætafram­boði í flugi, einkum til og frá Evr­ópu, Norður­lönd­um og Bretlandi. Þá hafi aukið gist­i­rými fylgt með og stöðug markaðssetn­ing verið á öll­um mörkuðum.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert