Óvenju margir voru teknir fyrir of hraðan akstur í nágrenni Selfoss í gær. Yfir tuttugu manns voru teknir á rúmum fimm tímum í gærkvöldi. Verslunarmannahelgarumferðin er hafin að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Einn ók á 90 km hraða innanbæjar. Ökumaðurinn, sem fékk nýlega ökuleyfi, hlaut akstursbann að launum og 3 punkta í ökuferilsskrá að sögn lögreglunnar á Selfossi.