Ók á 129 km hraða á Sæbraut

Tvítugur piltur var sviptur ökuleyfi í nótt eftir að bíll hans mældist á 129 km hraða á Sæbraut. Pilturinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna umferðarlagabrota.

Að sögn lögreglu voru allmargir ökumenn teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær en þeir voru stöðvaðir víða í umdæminu. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi en lögreglan stöðvaði fjóra aðra ökumenn sem einnig voru réttindalausir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert