Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Mussaieff, eiginkona hans, heimsóttu í gær íslenska þátttakendur á alheimsmóti skáta sem haldið er í Hyland Park í Essex-héraði í Bretlandi. Margrét Tómasdóttir, skátahöfðingi Íslands, tók á móti þeim ásamt Braga Björnssyni varaskátahöfðingja og fararstjóra íslenska hópsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu tóku íslensku skátarnir vel á móti þeim hjónum og fóru þau víða um mótssvæðið m.a. komu þau í heimsókn á kynningarsvæði Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Sigurgeir Guðmundsson, formaður félagsins tók á móti þeim hjónum á kynningasvæði félagsins.
Forsetafrúnni var boðið í svifbraut sem sett hafði verið upp á svæðinu og stóðs hún ekki mátið. Uppátækið vakti mikla kátínu meðal viðstaddra og ekki síst hjá forsetafrúnni.