Umferð er að þéttast í átt til höfuðborgarinnar en gengur vel að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Umferðarþunginn virðist hafa dreifst nokkuð vel yfir daginn og segir lögregla að umferð sé jafnvel léttari nú en upp úr hádegi í dag. Þá mun hafa verið nokkuð um að fólk hafi farið í gær og tekur lögreglan á Akureyri í sama streng. Talsvert hefur fækkað í bænum eftir vel heppnaða helgi.
Á Suðurlandsvegi við Selfoss er umferð orðin þétt, svo að segja bíll við bíl að sögn lögreglunnar á Selfossi, en gengur vel og hafa engar tafir orðið enn.