Festist á umferðareyju

Umferðaróhapp var á Hafnargötu í Reykjanesbæ í dag. Þar hafði bifreið verið ekið norður götuna og upp á grjóthleðslu á umferðareyju. Bíllinn sat fastur á eyjunni og þurfti kranabifreið til að losa hann. Engan sakaði við óhappið, að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum.

Í nótt var tilkynnt um útafakstur á Reykjanesbrautinni við Hvassahraun. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifa fíkniefna en hafði hann tekið bílinn ófrjálsri hendi í Reykjavík. Bíllinn var fjarlægður að vettvangi með dráttarbifreið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert