Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í kvöld vegna elds í leiktækjum á Miklatúni við Miklubraut í Reykjavík. Þegar slökkvilið mætti kom í ljós að kveikt hafði verið í trjágreinum. Ekkert tjón hlaust af, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.