Nýting flaks af þorski, sem er veiddur út af Suðausturlandi, er betri en af þorski sem er veiddur út af Norðurlandi. Þá er flakanýting betri á tímabilinu júní til ágúst miðað við aðra ársfjórðunga, að því er fram kemur í nýrri rannsókn Matís.
Í rannsókninni, sem er samstarfsverkefni Matís og Fisk Seafood, er að finna niðurstöður rannsókna á því hvernig þorskur, sem veiddur var á mismunandi veiðisvæðum og á ólíkum árstíma, nýtist sem hráefni við vinnslu og verkun léttsaltaðra þorskafurða, en sú afurð hefur átt vaxandi vinsældum að fagna á mörkuðum í S-Evrópu á undanförnum árum.
Í rannsókninni voru skoðaðir þættir eins og aldur hráefnis frá veiði, los, mar, holdafar og og fleira sem getur tengst árstíðabundnum sveiflum í ástandi hráefnisins og veiðisvæðum ásamt veiðiaðferðum og meðhöndlun afla frá veiði til vinnslu.
Haft er eftir Sigurjóni Aransyni, sérfræðingi hjá Matís, í tilkynningu að fram hafi komið vísbendingar um mismunandi eiginleika þorsks á mismunandi veiðisvæðum og árstímum. Helstu niðurstöður hafi verið þær, að veiðisvæði út af Suðausturlandi gáfu marktækt betri flakanýtingu í þorski en veiðisvæði út af Norðurlandi, auk þess sem flakanýting var betri á tímabilinu júní-ágúst, miðað við aðra ársfjórðunga.
Verkefnið var styrkt af AVS rannsóknarsjóði í sjávarútvegi.