Slökknaði á umferðarljósum

Engin slys urðu á fólki þegar slökknaði á umferðaljósum víða á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, en álag á Neyðarlínuna jókst mikið.

Hjá lögreglunni á Akranesi, Egilsstöðum og í Borgarnesi frusu tölvukerfi og olli það nokkrum óþægindum. Þá slökknaði á tölvubúnaði Landhelgisgæslunnar um tíma, en það kom ekki að sök að sögn Gæslunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert