Ók ölvaður á staur

Umferðaróhapp varð við Hafnargötu, í Reykjanesbæ, laust eftir kl. 01:00 síðastliðna í nótt. Ölvaður ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og hafnaði á ljósastaur. Bifreiðin fjarlægð af vettvangi með kranabifreið.

Ökumaðurinn var talsvert ölvaður og var látinn sofa úr sér í fangageymslu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert