Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, lagði fram bókum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í dag þar sem hann gagnrýnir harðlega hvernig bæði fyrrverandi og núverandi ríkisstjórn heldur á málum hvað varðar breytta stöðu utanríkis- og öryggismála í kjölfar brottfarar Bandaríkjahers af Íslandi.
Segir Steingrímur, að Íslandi sé nú þvælt inn í heræfingar, samningar gerðir við önnur ríki og bandalög, mál sett í farveg og stofnað til mikils kostnaðar í nútíð og framtíð án nokkurra fyrirliggjandi fjárheimilda í lögum og án nokkurrar undangenginnar umræðu og stefnumótunar á sjálfstæðum íslenskum forsendum.
Yfirlýsing Steingríms er eftirfarandi:
- Án nokkurrar undangenginnar umræðu og stefnumótunar á sjálfstæðum íslenskum forsendum,
- án nokkurrar greiningar á þörfum Íslands og hagsmunum,
- án eiginlegs samráðs við utanríkismálanefnd,
- án þess að hinn nýi samráðsvettvangur stjórnmálaflokkanna, sem boðaður var þegar hinn 26. september 2006, hafi litið dagsins ljós
er Íslandi nú þvælt inn í heræfingar, samningar gerðir við önnur ríki og bandalög, mál sett í farveg og stofnað til mikils kostnaðar í nútíð og framtíð án nokkurra fyrirliggjandi fjárheimilda í lögum.
Það sem í vændum virðist vera og koma til með að fela í sér útgjöld er m.a.: