Ánamaðkaþjófur á ferð

Meintur ánamaðkaþjófur var á kreiki í austurborg Reykjavíkur í gær en lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í Háaleitishverfi síðla kvölds. Við athugun reyndist karlmaður hafa farið í óleyfi inn á einkalóð í leit að ánamöðkum.

Hundur varð mannsins var og gelti að honum en þá reyndi maðurinn að fela sig í runna. Hann stoppaði fljótt við þar og hafði sig á brott. Segir lögregla ekki vitað hvort hann hafði eitthvað upp úr krafsinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert