Fjöldi manns fleytti kertum á Tjörninni í Reykjavík í gærkvöldi í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki. Athöfn fór fram á sama tíma við Minjasafnstjörnina á Akureyri.
Er þetta í tuttugasta og þriðja skiptið sem kertum er fleytt á Tjörninni af þessu tilefni.