Ný yfirlitsskrá um fyrirhugaðar tilnefningar á heimsminjaskrá

Mývatn verður á yfirlitsskrá yfir fyrirhugaðar tilnefningar á heimsminjaskrá.
Mývatn verður á yfirlitsskrá yfir fyrirhugaðar tilnefningar á heimsminjaskrá. mbl.is/Birkir

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu menntamálaráðherra og umhverfisráðherra að nýrri yfirlitsskrá yfir fyrirhugaðar tilnefningar Íslands á heimsminjaskrá UNESCO. Þingvellir eru eini staðurinn á Íslandi sem er á heimsminjaskrá enn sem komið er en umsókn Íslands um Surtsey á heimsminjaskrá verður tekin fyrir af UNESCO á næsta ári.

Eftirtaldir staðir eru nú á yfirlitsskrá Íslands:

Náttúru- og menningarminjar: Breiðafjörður

Náttúruminjar: Þingvallasvæðið; Vatnajökulsþjóðgarður; Mývatn; Atlantshafshryggurinn - (alþjóðleg raðtilnefning þar sem Ísland yrði hugsanlega í forsvari í samstarfi m.a. við England, Portúgal, Noreg, Spán og fleiri lönd).

Menningarminjar: Íslenskar torfbyggingar ásamt tengdu búsetulandslagi - (raðtilnefning); Víkingaminjar (alþjóðleg raðtilnefning þar sem Ísland verður í forsvari í samstarfi við m.a. Danmörku, Svíþjóð, Þýskaland (Slésvík-Holstein), Kanada og fleiri lönd).

Sérhverju aðildarríki UNESCO samningsins um verndun menningar- og náttúruminja heims ber að leggja fyrir Nefnd um arfleifð þjóða heims yfirlitsskrá yfir menningar- og náttúruminjar sem viðkomandi ríki telur einstakar á heimsvísu. Tilnefningar á heimsminjaskrána eru gerðar á grundvelli yfirlitsskránna og skulu þær endurskoðaðar á nokkurra ára fresti.

Heimsminjanefnd Íslands, sem menntamálaráðherra skipaði árið 2005, vann að endurskoðun yfirlitsskrárinnar, m.a. með tilliti til þeirrar reynslu sem fengist hefur af þeim tveim tilnefningum, sem Ísland hefur lagt fyrir heimsminjanefnd UNESCO. Enn fremur hefur við endurskoðunina verið horft til Búdapest yfirlýsingar heimsminjasamningsins frá árinu 2002, þar sem fjallað er um nauðsyn þess að efla trúverðugleika heimsminjalistans með því að auka jafnvægið innan hans, tryggja verndun heimsminjastaða, efla þekkingu og færni þeirra sem vinna með samninginn og auka meðvitund og stuðning almennings við verndun heimsminja.

Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu segir, að á undanförnum árum hafi áhersla verið lögð á raðtilnefningar staða sem ná yfir fleiri en eitt ríki, fjölgun náttúruminjastaða og að þjóðir þriðja heimsins fái fleiri staði á heimsminjalistann, auk þess sem áhersla er lögð á tilnefningar færri og stærri staða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert