Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli var kölluð út rétt fyrir kl. 20 í kvöld vegna manns, sem hafði lent í hrakningum þegar bíll hans flaut upp og barst niður með Gilsá, sem er innan við Fljótshlíð, nokkra vegalengd.
Manninum var bjargað af þaki bílsins og er hann heill á húfi, að sögn Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Er nú unnið að því að ná bílnum á þurrt.
Maðurinn virðist hafa villst af réttri leið og farið yfir ánna á röngum stað.