Þétt umferð hefur verið á Ólafsfjarðarvegi, sem liggur á milli Dalvíkur og Akureyrar, í dag, enda margir á heimleið eftir að hafa tekið þátt í Fiskideginum mikla á Dalvík. Lögreglumenn frá Akureyri hafa verið þar við umferðareftirlit í dag og hefur umferðin vandræðalaust fyrir sig að sögn varðstjóra. Ekki hefur borið mikið á hraðakstri, enda vill hægjast á umferðinni þegar hún er mikil.