Samtök hernaðarandstæðinga efna nú síðdegis til mótmæla gegn yfirstandandi hernaðaræfingum á Íslandi. Safnast var saman við norska sendiráðið við Fjólugötu í Reykjavík klukkan 17, en fyrirhugað var að ganga að sendiráðum Bandaríkjanna og Danmerkur, auk stjórnarráðsins.