Rekstrartruflun varð á háspennustreng í Kópavogi um kl. 9:50 sem var til þess að rafmagnslaust er í Kórahverfi, Salahverfi og Hvörfum. Ekki er vitað á þessari stundu hvað olli þessari truflun en unnið er að því að koma rafmagni á aftur, að því er segir í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur.