Unnið að mati á tilnefningu Surtseyjar á Heimsminjaskrá UNESCO

Chris Wood, fulltrúi IUCN, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Elliði Vignisson, …
Chris Wood, fulltrúi IUCN, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum ræða við Guðríði Sigurðardóttur, forstöðumann Þjóðmenningarhúss.

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Chris Wood, fulltrúi Alþjóða náttúruverndarsamtakanna (IUCN), skoðuðu Surtseyjarsýninguna í Þjóðmenningarhúsi í dag. Chris Wood er staddur hér á landi til að meta tilnefningu Surtseyjar á Heimsminjaskrá UNESCO. Hann flaug til Surtseyjar í gær í fylgd fulltrúa umhverfisráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, Náttúrfræðistofnunar Íslands og bæjarstjórnar Vestmannaeyja.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu að IUCN gegni því hlutverki að leggja mat á umsóknir og verndun náttúruminja sem tilnefndar eru á heimsminjaskrána. Wood fór til Surtseyjar í gær í fylgd fulltrúa umhverfisráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands og bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Frá Surtsey var flogið til Heimaeyjar þar sem haldinn var fundur með heimamönnum.

Chris Wood og Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra heimsóttu Surtseyjarsýningu í Þjóðmenningarhúsi í dag og snæddu saman hádegisverð.

Sérstaða Surtseyjar metin

Fram kemur að umhverfisráðuneytið hafi umsjón með heimsókn fulltrúa IUCN að þessu sinni en menntamálaráðuneytið hefur umsjón með tilnefningu Surtseyjar á Heimsminjaskrána. Starfsfólk UNESCO vinnur nú að því að fara yfir og meta tilnefninguna og er heimsókn Chris Wood hingað til lands liður í því starfi. Meðal þess sem verður metið er sérstaða Surtseyjar, hvort hún teljist það einstök á heimsmælikvarða að hún eigi erindi á skrána og hvort Íslendingar standi nægilega vel að varðveislu hennar. Að matinu koma allt að 20 sérfræðingar á vegum Alþjóða náttúruverndarsamtakanna og niðurstöðu sérstakrar matsnefndar IUCN er að vænta í byrjun næsta árs. Endanlegrar niðurstöðu UNESCO um hvort Surtsey verði skráð á Heimsminjaskrána er að vænta á fundi heimsminjanefndar UNESCO í júní á næsta ári. Aðeins einn staður á Íslandi er nú á heimsminjaskrá, það eru Þingvellir, sem voru teknir á skrána sem menningarverðmæti á heimsvísu.

Forsendur fyrir tilnefningu Surtseyjar á heimsminjaskrá eru tvíþættar. Annars vegar er eyjan einstakt dæmi um þróunarsögu jarðar, þýðingarmikil ferli í landmótun, bergmyndun og jarðeðlisfræði. Hins vegar er hún einstök vegna þess að þar hafa skapast og verið nýtt tækifæri til þess að fylgjast með aðflutningi, landnámi og þróun tegunda lífvera á lífvana landi og hvernig vistkerfi á landi og í hafinu verða til.

Aðeins 13 náttúrusvæði á heimsminjaskrá UNESCO

Til þess að komast inn á heimsminjaskrána þurfa viðkomandi náttúru- og menningarminjar að vera einstakar á heimsmælikvarða og nú eru einungis 13 náttúrusvæði á heimsminjaskrá UNESCO vegna eldvirkni. Þjóðir heims telja flestar mjög mikilvægt að eiga staði inni á heimsminjaskrá UNESCO. Í því felst bæði viðurkenning á því að innan vébanda þeirra séu til svo merkilegar náttúru- og/eða menningarminjar að þær hafi ótvíræða þýðingu fyrir allan heiminn og viðurkenning á því að viðkomandi þjóð sé fær um að varðveita minjarnar í nafni alls heimsins, því þjóðin skuldbindur sig að tryggja varðveislu þeirra.

Í sumar voru 40 ár liðin frá því að eldgosi lauk í Surtsey og af því tilefni var sýningin Surtsey – jörð úr ægi opnuð í Þjóðmenningarhúsi. Gert er ráð fyrir að sýningin verði flutt til Vestmannaeyja og sett upp í Surtseyjarstofu sem byggð verður á næsta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert