Iceland Express hefur flug til Barcelona í vetur og hefst sala á hádegi þann 16. ágúst. Barcelona verður fimmtándi áfangastaðurinn sem Iceland Express flýgur til. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, á tímabilinu frá 9. nóvember til loka maí að undanskildu hléi frá miðjum desember fram til 1. febrúar.
„Barcelona er skemmtileg viðbót við okkar áfangastaði og er ánægjulegt að geta boðið Íslendingum upp á samkeppni í flugi til þessarar einstöku borgar. Eins og íslenskir neytendur hafa kynnst er Iceland Express stöðugt að leita leiða til að auka framboð á áætlunarflugi á sanngjörnu verði og er Barcelona enn eitt dæmið um það,“ segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, í fréttatilkynningu.
Flogið verður frá Keflavík kl. 16:25 föstudaga og mánudaga, en lagt af stað frá Barcelona til Keflavíkur kl. 23:10 að staðartíma föstudaga og mánudaga. Flugtíminn milli Keflavíkur og Barcelona er um 4 klukkutímar og 20 mínútur.