Ekki urðu alvarleg slys á fólki er bíll valt á Fjarðarheiði laust eftir hádegi í dag, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Egilsstöðum. Tvennt var í bílnum, erlendir ferðamenn nýkomnir úr ferjunni Norrænu, og var annað flutt á sjúkrahús en reyndist ekki hafa hlotið mikil meiðsl.