Kona datt af hestbaki við Árbúðir við Kjalveg um kvöldmatarleytið í kvöld, og var talið að hún hefði hlotið bakmeiðsl. Því var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út og flutti hún konuna á slysadeild á Landspítala háskólasjúkrahúsi í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi.
Þá greindi Selfosslögreglan einnig frá því að laust eftir klukkan níu í kvöld hefði vörubíll oltið á hringtorginu við Þorlákshöfn, en enginn meiddist.