Þverfaglegt teymi yfirmanna barna- og unglingageðdeildar sem unnu að tillögum um úrbætur á göngudeild BUGL, vilja að gefnu tilefni koma eftirfarandi á framfæri. Fullt samráð var haft um gerð tillagnanna og ríkir almenn ánægja meðal starfsmanna með auðsýndan vilja hjá heilbrigðisráðherra til að styrkja göngudeild BUGL með það að markmiði að bæta þjónustu deildarinnar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá undirrituðum.
Guðrún B. Guðmundsdóttir yfirlæknir, Hrefna Ólafsdóttir yfirfélagsráðgjafi, Linda Kristmundsdóttir deildarstjóri, Ósk Sigurðardóttir yfiriðjuþjálfi og Páll Magnússon yfirsálfræðingur.