Á morgun verður opnuð sýning á ljósmyndum Sigurgeirs Jónassonar í sýningarsal Toyota í Kópavogi líkt og greint var frá á Fréttavef Morgunblaðsins í gær. Hins vegar urðu þau leiðu mistök í frétt Morgunblaðsins í dag að sýningin var sögð opna í dag.
Í tilefni þess býðst íbúum höfuðborgarsvæðisins að upplifa sanna Eyjastemmningu frá kl. 12-16 með ósviknum Vestmannaeyja-veitingum og verður meðal annars boðið upp á reyktan lunda, að því er segir í tilkynningu.