Umferð gengur vel úr Laugardalnum

Frá tónleikum Kaupþings í kvöld.
Frá tónleikum Kaupþings í kvöld. mbl.is/Kristinn

Umferð gengur vel úr Laugardalnum að sögn varðstjóra í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en tónleikum sem Kaupþing stóð fyrir lauk nú skömmu fyrir klukkan 23. Ekki liggur ljóst fyrir hve margir voru á tónleikunum en nefndar hafa verið tölur allt frá 20 þúsund til 45 þúsund gestir en lögregla telur að það sé ofáætlað án þess að hafa staðið sérstaklega að talningu á tónleikagestum. En samkvæmt upplýsingum frá tónleikarahöldurum lögðu tæplega 50 þúsund manns leið sína í Laugardalinn á tónleika í kvöld.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert