Aron Pálmi Ágústsson öðlaðist frelsi sitt á ný í dag eftir að hafa afplánað 10 ára refsivist í Texas. Hann var dæmdur til 13 ára gamall fyrir kynferðisbrot. Í dag varð hann frjáls ferða sinna á ný eftir að staðsetningartæki og ökklaband, sem hann hefur borið síðastliðin 4 ár, var fjarlægt.
Þrettán ára gamall var Aron Pálmi dæmdur fyrir kynferðisbrot sem hann framdi tæpu ári áður. Brotið fólst í því að hann fékk 7 ára dreng með sér í kynlífsleik, að því er kemur fram á heimasíðunni rfj.is.