Verkefnisstjórn Menningarnætur lýsir yfir ánægju

Frá flugeldasýningunni á Menningarnótt
Frá flugeldasýningunni á Menningarnótt mbl.is/Eyþór

Verkefnisstjórn Menningarnætur lýsir yfir ánægju sinni með dagskrárgerð og samstarf við íbúa, rekstraraðila og aðra sem komu að Menningarnótt. Atburðurinn tókst einstaklega vel að mati verkefnisstjórnar og öryggisaðila.

Menningarnótt í miðborginni tókst einstaklega vel að mati verkefnisstjórnar og öryggisaðila. Lögreglan telur að að minnsta kosti jafnmargir eða fleiri en í fyrra hafi tekið þátt í hátíðarhöldunum í ár, en þau teygðu sig frá Vatnsmýrinni að Miklatúni. Á stöðufundi aðgerðastjórnar öryggisaðila kl. 01:00 kom fram að hátíðin hafi farið sérstaklega vel fram og að stækkun hátíðarsvæðisins hafi orðið til þess að dreifa betur mannfjöldanum sem sótti hátíðina, að því er kemur fram í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert