Friðrik gerði jafntefli í Hollandi

Friðrik Ólafsson gerði jafntefli við nýsjálenska skákmanninn Puchen Wang í fimmtu umferð á Euwe Stimulans skákmótinu, sem fer fram í Hollandi. Friðrik hafði svart og sættust skákmennirnir á jafntefli eftir 57 leik.

Friðrik er með 2 vinninga eftir fimm umferðir og er í 6.-7. sæti af 10 þátttakendum. Frídagur verður á morgun en á fimmtudag teflir Friðrik við Amon Simutowe frá Zambíu, sem er efstur með 4,5 vinninga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert