Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst um klukkan 22 í gærkvöldi tilkynning um aðfinnsluvert aksturslag í Grafarvogi. Við athugun reyndist um að ræða hálfgerðan kappakstur tveggja bíla í Gufuneskirkjugarði.
Að sögn lögreglu voru ökuþórarnir, sem eru 17 ára piltar, í fyrstu hissa á afskiptum lögreglunnar en skömmuðust sín þegar þeim var gerð grein fyrir alvarleika málsins.