Mosfellingar fögnuðu í dag 20 ára afmæli bæjarins á útitónleikum á íþróttavellinum við Varmá í kvöld. Tónleikarnir marka upphaf dagskrárinnar ,,Í túninu heima” sem standa mun alla helgina. Hljómsveitirnar Stuðmenn og Gildran komu fram, sú fyrrnefnda flutti lög sín í hefðbundnum útsetningum, en bryddaði hins vegar upp á nýjungum í klæðaburði.