Friðrik Ólafsson og Argentínumaðurinn Oscar Panno gerðu jafntefli í 9. og síðustu umferð minningarmótsins um Max Euwe í Hollandi í dag. Friðrik var með svart en þeir Panno sættust á skiptan hlut eftir 14 leiki. Þeir enduðu báðir með 4 vinninga af 9 mögulegum. Öðrum skákum í lokaumferðinni er ekki lokið.