Sprengjueyðingaræfingin Northern Challenge 2007 hófst í morgun. Landhelgisgæslan skipuleggur æfinguna með styrk frá Atlantshafsbandalaginu og eru sprengjusérfræðingar víða að úr heiminum mættir til að læra það nýjasta á þessu sviði.
Að sögn Landhelgisgæslunnar fer æfingin fram innan og við nýja öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Áhersla sé lögð á hryðjuverkasprengjur en á æfingunni eru sprengjusérfræðingar sem hafa starfað í Írak, Afganistan og fleiri stríðshrjáðum löndum.
Æfingin stendur til 7. september. Í fyrri vikunni verður lögð áhersla á fræðslu og mat á hæfni þátttakenda en í næstu viku verður aðalæfingin haldin.