Prentsmiðja Morgunblaðsins gerð að sjálfstæðu félagi

Prentsmiðjuhús Landsprents og hús Morgunblaðsins í Hádegismóum.
Prentsmiðjuhús Landsprents og hús Morgunblaðsins í Hádegismóum. mbl.is/ÞÖK

Prentsmiðja Morgunblaðsins hefur verið gerð að sjálfstæðu félagi í fullri eigu Árvakurs hf. og heitir nýja félagið Landsprent ehf. Starfsmenn Landsprents eru um fjörutíu talsins og framkvæmdastjóri verður Guðbrandur Magnússon, sem áður var framleiðslustjóri Árvakurs.

Í tilkynningu segir, að hjá Landsprenti séu prentuð flest öll dagblöð landsins, Morgunblaðið, Blaðið, DV og Viðskiptablaðið. Auk þess séu prentuð þar fjöldamörg önnur blöð og megi þar nefna Bændablaðið, nánast öll bæjar- og hverfisblöð á höfuðborgarsvæðinu og ýmis auglýsinga- og kynningarblöð.

Þá segir að blaðaprentvél Landsprents sé sú afkastamesta og fullkomnasta á landinu. Þar sé hægt að prenta jafnt stór sem lítil blöð í fullum litgæðum og stórum upplögum á miklum hraða, ásamt ýmis konar fullvinnslu. Landsprent er í nýlegu húsi í Hádegismóum við Rauðavatn. Þar er einnig til húsa blaðadreifing Árvakurs og áskriftarþjónusta.

Starfsemi Landsprents ehf. byggist á öruggri og hraðvirkri þjónustu, vandaðri prentun og ábyrgri umhverfisstefnu, sem er vottuð skv. alþjóðlega ISO 14001 umhverfisstaðlinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert