Farþegi var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til skoðunar og aðhlynningar eftir að bíl, sem hann var í, var ekið á steinstólpa á Reykjanesbraut við Vogaafleggjarann um klukkan sex í morgun en þar er nú unnið að vegaframkvæmdum vegna lagningar undirganga.
Samkvæmt upplýsingum Lögreglunnar í Keflavík er hámarkshraði á svæðinu 50 km og mun vera töluvert um að hann sé ekki virtur. Ekki er þó vitað hvort svo var í þessu tilfell en slæmt skyggni var á svæðinu og aðstæður slæmar vegna hálku er slysið varð.