Hiti fór á nokkrum stöðum á Norðurlandi og Norðausturlandi yfir 20 gráður í nótt og má það teljast frekar óvenjulegt. Í fyrrinótt var hitinn um frostmark á Skjaldþingsstöðum en klukkan 2 í nótt var 22 stiga hiti en vindhraðinn var jafnframt 20 metrar á sekúndu.