Íslenskt lið komst í úrslit í heimsbikarmóti í póker, sem nú stendur yfir í Barcelona. Íslenska liðið varð stigahæst í riðlakeppninni og keppir því í fjögurra liða úrslitum ásamt Rúmeníu, Bandaríkjunum og Kanda. Úrslitakeppnin verður spiluð á morgun og verður sýnd beint á netinu.
Íslenska liðið spila Andri Björgvin Arnþórsson, fyrirliði, Halldór Már Sverrisson, Magnús Jóhannesson, Friðrik Jörgensson og Einar Sveinsson.