Hass fannst við leit í bifreið

Lögreglan á Blönduósi stöðvaði för átján ára stúlku sem var á norðurleið eftir að bifreið sem hún ók vakti grunsemdir. Að sögn lögreglunnar var ákveðið að láta fíkniefnahund gera leit í bílnum þegar ferill stúlkunnar hafði verið kannaður og fann hundurinn þrjá búta af hassi sem eru trúlegast um þrjú grömm.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert