Íslendingar voru orðnir 311.396 talsins um mitt árið, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Þar af voru 158.866 karlar og 152.530 konur. Hefur landsmönnum fjölgað um sjö þúsund frá sama tíma á síðasta ári en Íslendingar komust yfir 300 þúsund í upphafi síðasta árs.