Harður árekstur varð við gatnamót Birkimels og Hringbrautar í vesturbæ Reykjavíkur rúmlega 22 í gærkvöldi. Að sögn lögreglu voru fjórir fluttir á slysadeild eftir áreksturinn, en enginn er þó talinn vera alvarlega slasaður.
Báðar bifreiðarnar voru fluttar á brott með krana. Tækjabifreið frá slökkviliðinu var send á staðinn en ekki þurfti að beita klippum til þess að ná fólkinu út.
Tildrög slyssins liggja ekki fyrir