Réðst á 15 ára dreng

Ráðist var á 15 ára gamlan dreng fyrir utan skemmtistað á Selfossi um tvöleytið í nótt. Að sögn lögreglu hlaut drengurinn áverka á höfði, en árásarmaðurinn hrinti honum í jörðina og sparkaði í hann liggjandi. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið en það er vitað hver árásarmaðurinn er. Hann verður kallaður til yfirheyrslu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert