Fimmtíu og þrír brutu gegn lögreglusamþykkt

Fimmtíu og þrír brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar um helgina. Tuttugu og þrír gerðust sekir um þetta athæfi aðfaranótt laugardags og þrjátíu aðfaranótt sunnudags.

Um var að ræða 51 karlmenn og 2 konur, 17 og 18 ára. Karlarnir eru flestir á þrítugsaldri, eða 30, og þrettán eru undir tvítugu. Elsti karlmaðurinn er hins vegar hálfsextugur.

Fólkið hafði í frammi ýmiskonar ólæti og óspektir en því var boðið að ljúka málinu með sektargreiðslu. Margir tóku þann kostinn en meðal þess sem fólkið gerði af sér var að kasta af sér þvagi á almannafæri, fleygja rusli og brjóta flöskur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka