Unglingspiltur hefur játað hjá lögreglunni á Selfossi að hafa lagt eld að bílskúr við fasteignasöluna Bakka við Sigtún á Selfossi í byrjun ágúst. Pilturinn gaf enga skýringu á því af hverju hann kveikti eldinn en hann þekkti hvorki til eiganda skúrsins né vissi hver hann var.
Lögreglan á Selfossi segir, að þar sem drengurinn sé ekki sakhæfur vegna ungs aldurs verði hann ekki ákærður en starfsmenn barnaverndarnefndar Árborgar komu að málinu á rannsóknarstigi.