Goldman Sachs að kaupa hlut í Geysi Green?

Fullyrt var í fréttum Útvarpsins, að samningar um að bandaríski bankinn Goldman Sachs kaupi þriðjungshlut í Geysi Green Energy séu á lokastigi. Geysir Green á umtalsverðan hlut í Hitaveitu Suðurnesja.

Haft var eftir Ásgeiri Margeirssyni, framkvæmdastjóri Geysis Green, að rætt hafi verið við fjölda fyrirtækja, sem hafi sýnt því mikinn áhuga að taka þátt í Geysi Green og sé Goldman Sachs í þeim hópi. Málin verði skoðuð vandlega en erlend fyrirtæki hafi enn sem komið er ekki eignast hlut í fyrirtækinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert