Skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað úr sumarbústað

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt stúlku í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ásamt karlmanni brotist inn í sumarbústað í Stafafellsfjöllum í Lóni og stolið þar geisladiskum, álgrillbökkum, tjaldlukt, 6 kertum, Yatsy spili og tannkremstúpu. Var þýfið metið á 5439 krónur.

Stúlkan, sem var 18 ára þegar þetta gerðist, hafði áður verið fundin sek um brot gegn hegningarlögum en þá var refsingu hennar frestað. Hún rauf með innbrotinu skilorð en var dæmd til skilorðsbundinnar fangelsisvistar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert