Allmargir voru staðnir að hraðakstri á höfuðborgarsvæðinu í gær. Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var 17 ára stúlka í þeim hópi, en hún var stöðvuð á mótum Reykjanesbrautar og Sæbrautar eftir að bíll hennar mældist á 118 km hraða. Stúlkan mun missa ökuskírteinið og þarf að gangast aftur undir ökupróf.
Tuttugu og eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglu í gær en þau voru flest minniháttar. Sextugur karlmaður var tekinn fyrir ölvunarakstur en til hans náðist á Suðurlandsbraut. Í Kópavogi var fimmtugur karlmaður stöðvaður í umferðinni en sá hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.