Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, hefur ákveðið að rjúpnaveiðitímabilið í ár standi frá 1. til 30. nóvember en í fyrra var tímabilið frá 15. október til 30. nóvember. Mælt er með því að veiddir verði að hámarki 38.000 fuglar. Áfram mun ríkja sölubann á rjúpum og rjúpnaafurðum. Ákvörðunin byggir á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2006.
Umhverfisráðuneytið segir, að rjúpum fækki nú annað árið í röð frá síðasta uppsveifluskeiði, en það stóð aðeins yfir í tvö ár samanborið við fjögur til fimm ár í fyrri uppsveiflum rjúpnastofnsins. Að mati Náttúrufræðistofnunar er áætlaður varpstofn nú um 110.000 fuglar og er það fækkun um 70.000 fugla frá því í fyrra.
Við mat á veiðiþoli er miðað við að hlutföll unga í veiðistofni verði 79%, það sama og talningar sýndu síðsumars 2007. Stærð veiðistofns 2007 er metin um 440.000 fuglar og með því mælt að ekki verði veiddir fleiri en 38.000 fuglar í ár.
Ráðuneytið segir, að miðað við fyrri reynslu af rjúpnastofninum í niðursveiflum, muni rjúpum fækka næstu þrjú til fjögur árin og veiðiþol stofnsins minnka að sama skapi. Það sé því ljóst að takmarka þarf rjúpnaveiði enn frekar í ár en gert hafi verið á síðustu árum.
Í ákvörðun umhverfisráðherra felst eftirfarandi: