Kannabis og stolið skotvopn fannst við húsleit í Árbænum

Kannabislauf
Kannabislauf

Kannabisplanta fannst við húsleit í fjölbýlishúsi í Árbæ í gær. Húsráðandi, sem er karl á miðjum aldri, var handtekinn en í íbúð hans fannst einnig lítilræði af ætluðu maríjúana. Á sama stað fannst sömuleiðis riffill sem hafði verði stolið á Norðurlandi fyrir tveimur árum.

Húsleitin var framkvæmd að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert