Landslagið í Vestmannaeyjum breytti um lit í gær í miklu úrhelli. Mynduðust fossar, ár og lækir á eyjunni og flutu jarðvegshengjur, s.s. torf og mold niður lækina.
Loka þurfti hluta Hamarsvegar vegna vatnselgsins um tíma í gær þar sem niðurföll höfðu ekki undan.